Ólsenhjúkkur

09.11.2009 12:39:55 / olsen

JÆJAAAAA!!!

Sælar allar stúlkur mínar nær og fjær!

Núna þurfa allar að bretta upp ermarnar....alltof stutt í ferðina góðu! Tíminn flýgur svo hratt að það er engu líkt!!
Það sem við þurfum að vita núna og helst STRAX, er það hverjar ætla að gista og hverjar ætla að mæta og fara heim um kvöldið.
Endilega ef þið lesið þetta, látið það þá ganga á þær sem þið haldið að kíki aldrei hingað inn....ég sendi líka póst á Facebook :)

Mér finnst ólíklegt að kostnaður fari yfir 1000 krónur á mann, en það veltur náttúrulega allt á því hversu margar ætla að koma! við Þura sjáum um að kaupa í kvöldmatinn og því tengt, en ef þið ætlið að gista þá kippið þið með ykkur einhverjum morgunmat :)
Við tökum svo bara saman heildarkostnaðinn og þið leggið inná okkur eða komið með aur í bústaðinn! :d

Svo er bara að hópa sig saman í bíla og annað! Þetta verður bara kósý og næs hjá okkur!

Knús
Ása og Þura

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2009 14:48:15 / olsen

Búið að panta bústað stelpur mínar

Jæja...nú er komið að hinni árlegu bústaðarferð okkar Olsenskvísa, djók bara olsenskvísa :)
Við Þura erum víst í nefnd (vorum búnar að steingleyma því reyndar...hehe) og erum semsagt búnar að panta bústaðinn í Grímsnesi (sama og síðast á Lokastígnum) miðvikudaginn 11.nóv-12.nóv.
Ætlum að reyna að hafa sama fyrirkomulag og síðast þegar Bylgja og Sigga sáu um þetta, þ.e. að við sjáum um að elda sameiginlega kvöldmáltíð og þið borgið og brosið :d en þurfið auðvitað að koma með brennsa, morgunmat og annað nasl ef þið viljið!

Endilega kommentið á þetta elskurnar, svo við getum verið tímanlega í að áætla hvað við höfum mikinn pening á milli handanna og annað slíkt! Einnig til að vita hversu margir ætla að gista!

Nægur tími til að redda fríi eða skiptum...komasooo!!

Knús Ása og Þura


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.02.2009 17:15:07 / olsen

jæja...nú er komið að því!!!

Þura er aldeilis komin með leið á því hvað við hittumst sjaldan og hefur þvi ákveðið að bjóða okkur heim til sín að Suðurgötu 107 (akranesi fyrir þær sem ekki vita...hehehe), þann 12.mars næstkomandi klukkan ca.18:30 :)

Auðvitað komast aldrei allar, en við verðum nú allavega að gera heiðarlega tilraun til að hittast! Þannig að Þura var að spá í að hver og ein, kæmi með eitthvað smá góðgæti með sér og svo bara getum við setið og spjallað, slafrað í okkur og haft það kósý saman :)


Endilega látið vita í commentakerfinu hverjar komast og hvað þið getið tekið með ykkur!

Knús knús
fyrir hönd Þuru
Ása Þóra


» 23 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 18:13:31 / olsen

Næsti hittingur ?

Mig langar svo að hitta ykkur ... hvenær getum við hist næst kæra nefnd ?

Kveðja Stína

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 18:57:28 / olsen

smá pimp

Eru þið ekki komnar í jóla stemmarann ?

ég var allavega alveg komin með gubbuna af síðunni okkar....og náttlega ekkert að gerast :( ég missti af hittinginum svo ég veit ekkert hvað er að gerast með ykkur ... hvort einhver sé bomm eða einhver að gifta sig eða hætt að vinna eða komin með nýja vinnu eða kannski búin að missa vinnuna (vona nú ekki)
Hvernig kemur kreppan við ykkur ?

Kveðja
Stína

p.s engin kreppa í fiskbúðinni og nóg að gera á barnaskurðdeild :)

» 10 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 22:25:29 / olsen

Nýr olsen-meðlimur fæddur

Sælar mínar kæru og takk fyrir síðast, þó að ég hafi nú ekki verið uppá marga fiska kannski:cry: Er ennþá lasin og mygluð, leiðindarpest sem er greinilega að ganga!

En ég vildi nú segja ykkur að hún Fanney okkar var að eignast lítinn snúð í gær, skilst að prinsinn hafi verið heilar 17 merkur og allt gekk vel :d
Sendi þeim mínar bestu hamingjuóskir með nýja prinsinn :)

Kv.Ása Þóra lasarus


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 19:58:22 / olsen

Spennan magnast, það styttist í bústaðarferð....

Jæja, þá fer þetta bráðum að gerast....:d

Það virðast allir vera til í sameiginlegan mat þannig að við Bylgja ætlum að vippa einhverju saman (þ.e.a.s Bylgja og ég þykist vera að hjálpa, alveg lost sko!). Við ætlum einnig að koma með snakk og gúmmulaði þannig að það eina sem þið þurfið að koma með er: rúmföt, sundföt (búið að tengja pottinn), morgunmat, bland og bús!! Og svo að sjálfsögðu góða skapið.....

Við skiptum svo kostnaði á milli okkar en sjálfur bústaðurinn kostar ekki nema 1500 kall nóttin.

Það sem þarf að gerast núna er að allir sem ætla að koma þurfa að staðfesti það....upp á matinn að gera, svo við vitum hvað við þurfum að elda fyrir marga!! Það er ekki kúl að elda fyrir 10 og það mæta bara 5 (og hana nú!!). :klikk:

Við ætlum að reyna að hugsa upp einhverja leiki og fíflagang....endilega tjá sig ef einhver er með hugmyndir! 8|

Að lokum.....við Bylgja ætlum að henda öllum út morguninn eftir og sjá svo um að þrífa, miklu einfaldara og ekki allir að þvælast fyrir öllum....í misgóðu standi! :^)

Vonum að sem flestar komist, erum orðnar geðveikt spenntar að hitta ykkur....
Koss og knús, Nefndin :haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 20:48:27 / olsen

Bústaðarferð haustið 2008

Sælar allar saman nær og fjær.....

Nú er komið að því, september bústaðarferðin. Við erum búnar að panta bústaðinn í Grímsnesinu (þennan stóra) fyrir 22-23 september. Hann tekur 16 manns samtals og vonandi er búið að tengja heita pottinn :haha:
Við vorum jafnvel að spá í því að elda kvöldmat, hafa hann sameiginlegan og svo myndum við deila kostnaðinum. Yrði svo mikið auðveldara, minna mess og meira hægt að einbeita sér að ölinu! 8| Skoðum það betur þegar nær dregur.....

Nú er bara að skrá sig og reyna að fá vöktum skipt ef mögulegt er. Endilega tjáið hugsanir ykkar og spekúleringar ef þið eruð með hugmyndir um eitthvað eða viljið koma einhverju á framfæri.....

Komma svo skvísur, allir að koma með!!
Kveðja, Nefndin (Bylgja og Sigga, hehe voða nefndin bara)

» 9 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 17:02:21 / olsen

FRÚ Bryndís Fjóla

gifti Bryndís sig ekki um helgina ? eða er ég að rugla ? hehe

allavega til hamingju með titilinn "frú" Bryndís

óska ykkur alls hins besta og hamingjusömu og frjósömu hjónabandi ;)

koss og knús

Stína

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 12:58:38 / olsen

Hæ hæ og hó hó.

Hvað er að frétta af Olsenhjúkkum????? Allt gott að frétta hjá mér, bumban stækkar og stækkar. Fór í 20 vikna sónar um daginn og Villi kallinn flýtti mér bara um næstum 3 vikur!!! Þannig að nú er ég skráð 18. september (í stað 10. október) en ég býst ekki við krílinu fyrr en í fyrsta lagi 25. september.

En hvernig er það, á ekkert að hittast í sumar???? Þar sem ég hef ekki mætt í síðustu tvo hittinga þá veit ég ekkert um það hvort það hafi verið sett saman nefnd í málið, en það væri gaman að heyra í ykkur og vita hvað ykkur finnst.
Kv. Fanney Svala

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 19:44:52 / olsen

Gleðilegan síðasta vetrardag

Hæ hæ elskurnar hvað er nú að fétta af ykkur??? það er allt gott að frétta af mér undirbúningurinn fyrir stóra daginn gengur eins og í sögu næstum ekkert sem á eftir að bóka nema söngvara í kirkjuna en vonandi finnum við einhvern góðan í það, annað sem er að frétta af mér er að ég er búin að segja upp á gjörgæslunni og ætla að fara að vinna á barnaspítalaunum í ágúst, fara frá Bylgju og Hrafnhildi til hennar Stínu:d (ég get ekki látið hana vera eina lengur, finnst ykkur það nokkuð?)
Gleðilegt sumar dúllurnar mínar og við sjáumst síðar, ætli ég verði ekki orðin virðuleg frú þegar ég hitti flestar ykkur næst:haha:
Kiss og knús Bryndís

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 21:30:01 / olsen

Lærdómslausir páskar

Langaði bara að koma með nýja færslu og minna á að í fyrsta sinn í 4 ár er ekki legið yfir lærdómsbókum í páskafríinu, ónei, nú er sjónvarpsdagskráin vandlega skoðuð, mætt í fermingar, vinir og ættingjar heimsóttir eða boðið í heimsókn. Ja hérna.... þvílíkir dýrðardagar!! Njótið þeirra stelpur mínar og gleðilega páska.
Ingibjörg

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 17:28:25 / olsen

Hver ætlar að keyra heim?

Jæja, nú styttist í hitting:) 
Ég var bara að spá í það hverjar ætluðu að keyra heim um kvöldið/nóttina???? Eru ekki einhverjar hér á skaganum sem eru að spá í því og væri þá ekki sniðugt að sameinast í bíl??? Ég get farið á bíl og væri til í að fá einhvern farþega með mér! Er einhver geim?
Kv. Fanney Svala

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 03:20:11 / olsen

framhaldsnám

hver hefur áhuga á framhaldsnámi í hjúkrun ?

kannski ég ;) nennir einhver að koma með mér á fund 12-13 eða 14 feb kl.15-16.30 ????

kv.Stína


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12